Einu sinni segðu já!

Þú giftir þig bara einu sinni (vonandi!) og þá þarf ALLT að vera fullkomið. Við í Matarkompaní gerum auðvitað ALLT fyrir ástina og göldrum það ferskasta og bragðbesta sem við eigum til upp úr hattinum til að gera daginn ykkar að einstökum viðburði. Í sameiningu sköpum við epískan matseðil, sækjum bæði í móderníska strauma og aldagamlar hefðir, til að búa til matarupplifun sem seint gleymist og er sérsniðin að karakter brúðhjónanna. Þetta er ykkar veisla og þið ráðið hvernig þið hafið hana!

Diska-service

Hérna erum við með þrjár útgáfur af matseðlum sem hægt er að velja á milli. Svo er auðvitað hægt að uppfylla óskir ykkar ef það er eitthvað annað sem þið sjáið fyrir ykkur.

Réttir eru bornir á borð á diskum. Þjónar eru ekki inni í verðinu.

Forréttir

Heimareyktur lax með piparrótarkremi, sítrónuklettasalati og bjórbrauði.

Grafið lamb í villikryddi með jarðskokkum, brúnuðum blómkálsskífum, bláberjum og bláberjageli.

Aðalréttir

Grillað lambafíle (m/fitu) í timjanhvítlauksmarineringu ásamt kartöfluköku (Pomme Anne), bökuðu rótargrænmeti og villikryddssoðgljáa.

Grilluð nautalund í rósmarínhvítlauksmarineringu ásamt kartöfluköku (Pomme Anne), bökuðu rótargrænmeti og villikryddssoðgljáa.

Sous vide-eldaður lax, brenndur með blóðbergsolíu ásamt íslenskri sölsmjörsósu, reyktu sýrðu epli, jarðskokkamauki og jarðskokkaflögum.

Eftirréttir

Crème brûlée með stökkri karamellu og ferskum berjum.

Frönsk súkkulaðikaka með léttþeyttum vanillurjóma og berjacouli.

Skyrkaka með kanilkexi, vanillu, berjageli og berjacouli.

Hlaðborðsseðill

Hlaðborð er sett upp af kokki frá okkur sem sér einnig um áfyllingar og skurð á kjöti.

Klassíska Hlaðborðið.

  • Hægeldað lambalæri í íslenskri kryddblöndu
  • Hægelduð kalkúnarbringa í rósmarin hunangs glace
  • Bakaðar kartöflusmælki með dillolíu
  • Ristað rótargrænmeti
  • Koniak piparsósa
  • Matarkompaní Bernaise sósa
  • Ítalskt kryddbrauð ásamt smjöri og heimagerðu pestói
  • Blandað salat með mangó, kirsuberjatómötum og fetaost

Verð

25 manns, 7.690 kr. á mann
50 manns, 7.590 kr. á mann
75 manns, 7.390 kr. á mann
100 manns, 7.190 kr. á mann

Rómantíska hlaðborðið

Forréttir:

  • Mini taco með Humar, sýrðum lauk, yuzu mæjó og wasabi hnetum
  • Nauta- carpaccio með truffle, mayo, rauðlaukssultu, vínberjum, klettasalati og stökkum jarðskokkum
  • Teriyaki kjúklingaspjót með hvítlaukssósu, sesam og vorlauk
  • Parmaskinkuspjót með basilíku, mozzarella og kirsuberja tómötum
  • Stökk rækja með sweet chili og yuzu mayó

Aðalréttir:

  • Hægelduð kalkúnabringa með hunangs-sinneps marineringu
  • Hvítlauks- rósmarín marineruð nautalund
  • Bakað kartöflusmælki með dillolíu
  • Ristað rótargrænmeti
  • Koníakpiparsós
  • Matarkompaní bèarnaise sósa
  • Blandað salat með mangó, kirsuberjatómötum og fetaosti
  • Heimabakað brauð með þeyttu smjöri og blönduðu pestói

25 manns, 11.190 kr. á mann
50 manns, 10.790 kr. á mann
75 manns, 10.390 kr. á mann
100 manns, 9.990kr kr. á mann

Poppaða Hlaðborðið

  • Mini Humar Taco 
    með sýrðum lauk, yuzu mæjó og wasabi hnetu

  • Kjúklingaspjót 
    með teriyaki og hvítlaukssósu

  • Mini Hamborgari 
    með Matarkompaní hamborgarasósu, sýrð gúrka, laukur, osti og salati

  • Stökkur kjúklingur 
    á spjóti með mangó og jalapeno glace ásamt rjóma osti

  • Tómat brúsetta 
    á snittu með heimagerðu pestó og balsamic glace

  • Stökk rækja 
    með sweet chili og yuzu mayó

  • Heima reyktur lax 
    með sesam rjómaost á grilluðu snittubrauði ásamt mangó Jalapenió Glace

  • Parmaskinka  
    með mozzarella, kirsuberjatómötum, basil og Balsamic glace á spjóti

  • Grilluð risarækja
    með sweet chili mayó

  • Blómkáls vængir með hot sósu og vegan hvítlaukssósu

  • Makkarónur og súkkulaði jarðaber með bökuðu hvítsúkkulaði

  • 25 manns 7.790 kr. á mann
  • 50 manns 7.690 kr. á mann
  • 75 manns 7.580 kr. á mann
  • 100 manns 7.470 kr. á mann

Forleikur

  • Tví- súkkulaði hjúpuð jarðarber með bökuðu hvítu súkkulaði
  • Makkarónur
  • Frönsk súkkulaði kaka

Verð

Verð á mann 1.650 kr.
Lágmarkspöntun 25 manns

Lukka

  • Mini oumph taco með sætri límónu sósu, sýrðum lauk, sriracha- sósu og salati
  • Nauta tartar með rauðrófum, piparrót og ætiþistlum
  • Tígrisrækjuspjót með sweet chili mayo, vorlauk og sesam

Verð

Verð á mann 1.950 kr.
Lágmarkspöntun 25 manns

Þríleikur

Forréttir

(val er um einn)

  • Humarsúpa með steiktum risahumarhala, dill olíu og bökuðu hvítu súkkulaði
  • Nauta- carpaccio með trufflu- mayo, rauðlaukssultu, vínberjum, klettasalati, hnetum og
    parmesan
  • Sítrus grafin bleikja með pikkluðum fennel, sítrus froðu og rauðlaukssultu

Aðalréttur

(val er um einn)

  • Grillað lambafillet með Pomme Anna kartöflu, sellerírótarmauki, grillaðri gulrót, nípu
    og soðgljáa
  • Grilluð nautalund með Pomme Anna kartöflu, nípumauki, hvítlauks ristaðri gulrót og
    soðgljáai
  • Hægelduð kalkúnarbringa með sætkartöflu Pomme Anna, blómkálsmauki, nípu og koníak-
    piparsósu

Eftirréttur

(val er um einn)

  • Hvít súkkulaði mús með hindberja- combo, lakkrís snjó og hafra- crumble
  • Crème brûlée með ferskum berjum og stökkri karamellu
  • Frönsk súkkulaði kaka með honey comb crisp og jarðarberjum.

Verð

  • Verð á mann 17.900 kr.
  • Lágmarkspöntun 25 manns

Ræðum saman!

Heyrðu í okkur ef þú ert með pælingar eða séróskir og við töfrum fram hina fullkomnu veislu saman.

Diskar eða hlaðborð

Við bjóðum bæði upp á diskaþjónustu til borðs og standandi eða sitjandi hlaðborð eftir því hvernig stemningu sóst er eftir. 

Pantaðu með 2 daga fyrirvara

Panta þarf veislur með a.m.k. tveggja daga fyrirvara en betra að bóka fyrr svo dagsetningin sé örugglega laus.